PANTANIR
Pöntun er afgreidd þegar greiðsla hefur borist. Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti. Hægt er að sækja pöntun eða fá sent. Allar sendar pantanir fara með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Sólveig Rún ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá okkur til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Einnig er hægt að sækja pantanir í Dalbrekku 30, 200 Kópavogi virka daga á milli 10-18. Pantanir sem gerðar eru fyrir kl. 16 verða tilbúnar til afhendingar næsta virka dag.
AFHENDINGARTÍMI
Afhendingartími innanlands er að jafnaði 2-4 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað. Varan er send beint heim upp að dyrum til kaupanda eða á næsta pósthús ef heimkeyrsla er ekki í boði í viðkomandi bæjarfélagi. Íslandspóstur sendir kaupanda sms áður en sendingin er keyrð út. Gætið að því að fylla út réttar upplýsingar um heimilisfang við pöntun til að tryggja rétta afhendingu.
SENDINGARKOSTNAÐUR
Enginn sendingarkostnaður er fyrir pantanir sem fara yfir 15.000 krónur. Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Allar sendingar eru sendar beint upp að dyrum.
solveigrun.is sendir hvert á land sem er.
VÖRUSKIL
Það skiptir okkur miklu máli að viðskiptavinir okkar séu ánægðir og því er veittur 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Við endurgreiðum vöru innan við 10 daga frá vöruskilum en flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
GÖLLUÐ VARA
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
FRIÐHELGI VIÐSKIPTAVINA
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum seldar eða gefnar til þriðja aðila en hafa þarf í huga að við kaupum þjónustu hjá fagaðila til að framfylgja öllum pöntunum á Solvegrun.is en sá þriðji aðili er bundinn trúnaði.
Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.
LÖG & VARNARÞING
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Solveigrun.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.